Innlent

Tímaspursmál um alvarlegt slys á Gjábakkavegi

MYND/Bjarni Daníelsson

Fjöldi ökumanna keyrir daglega um Gjábakkaveg á Lyngdalsheiði þrátt fyrir að hann sé ófær. Ástæðan er sú að hann styttir leiðina milli Reykjavíkur og Árnessýslu um hálftíma. Vegurinn getur hins vegar verið afar varasamur.

Bjarni Daníelsson formaður björgunarsveitarinnar Ingunnar segir einungis tímaspursmál hvenær alvarlegt slys verði á heiðinni. Björgunarsveitin fari í fjölmörg útköll yfir vetrartímann til að bjarga fólki þaðan.

Í gær voru aðstæður þannig að vatn og krapi lá yfir völlunum. Tveir karlmenn á vel búnum jeppa reyndu að keyra veginn sem var á floti. Þeir fóru út af honum með þeim afleiðingum að bíllinn sökk að hluta í vatnið.

Mennirnir voru búnir að vera í um klukkustund á þaki bifreiðarinnar þegar þeir komust loks í símasamband og hringdu eftir hjálp.

Símasamband er mjög stopult á svæðinu og Bjarni segir að mennirnir geti þakkað góðu veðri að verða ekki illa úti. Þeir hafi hins vegar gert rétt með því að reyna ekki að svamla í land.

Hann segir bíl hafa farið á kaf á sömu slóðum á laugardaginn. Sá var í samfloti við annan bíl sem dró hann upp. Fólkið kallaði ekki eftir aðstoð og kom sér sjálft til byggða. Símasamband á svæðinu er mjög stopult.

Árið 2003 byrjaði matsvinna við nýjan Gjábakkaveg. Úrskurður Skipulagsstofnunar um nýjan Gjábakkaveg var kærður árið 2004. Síðan var unnin ný matsskýrsla og Skipulagsstofnun fellst á hana í maí 2006. Sá úrskurður var líka kærður og umhverfisráðherra hefur ekki enn úrskurðað í málinu.

Stefán Gunnar Thors hjá VSÓ ráðgjöf, sem vann skýrsluna, segir að í báðum skýrslunum komi fram að Laugardalsvellir fari á flot við vissar aðstæður eins og þær sem hafi verið síðustu daga á svæðinu.

Mennirnir komust að sjálfsdáðum upp á þak bifreiðarinnar, en voru búnir að vera þar í um klukkustund
Fleiri fréttir

Sjá meira


×