Innlent

Vilja jafnræði í fréttaumfjöllun

Samtökin Hagur Hafnarfjarðar segja flesta fjölmiðla hafa sniðgengið staðreyndir og flutt fréttir frá Sól í Straumi gagnrýnislaust. Hins vegar sé ekki jafnræði í viðtölum til handa samtökunum og Sól í Straumi.  Hagur Hafnarfjarðar er fylgjandi stækkun Álversins.

Í yfirlýsingu mótmæla samtökin rangfærslum frá Sól í Straumi og segja þær til þess ætlaðar að ala á tortryggni.

Þá telja samtökin Sól í Straumi reka stærstu og dýrustu kosningabaráttu hagsmunasamtaka hér á landi. Framtíðarlandið standi straum af auglýsingakostnaði gegn stækkun álversins. Þá sé Hafnarfjarðarleikhúsið að sýna uppfærslu á „áróðursverki Andra Snæs."

Í yfirlýsingunni kemur fram að á annað þúsund Hafnfirðinga eigi lífsafkomu sína undir álverinu eða fyrirtækjum í viðskiptum við það.

Hér fyrir neðan má nálgast fréttatilkynninguna í heild sinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×