Innlent

Minna um ölvunarakstur um helgina

MYND/Vísir

Þrettán ökumenn voru teknir ölvaðir við akstur á höfuðborgarsvæðinu um helgina. Að sögn lögreglu er það í minna lagi. Mjög öflugt eftirlit var í gangi og stöðvaði lögregla nokkur hundruð ökumenn víðsvegar um umdæmið.

Átta hinna ölvuðu voru stöðvaðir í Reykjavík, tveir í Hafnarfirði og Kópavogi og einn á Kjalarnesi. Ein kona var í hópnum.

Þá var átján ára piltur tekinn í Hafnarfirði fyrir að aka undir áhrifum lyfja.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×