Innlent

Tveir menn teknir með fíkniefni

Lögreglan á Suðurnesjum lagði hald á um 20 grömm af amfetamíni og 3 grömm af hassi í gærkvöldi og handtók tvo menn. Lögreglunni barst ábending um mann á hótelherbergi í bænum sem grunaður var um að vera með fíkniefni í fórum sínum. Við leit í herberginu fann lögregla 7 grömm af amfetamíni og 3 grömm af hassi. Maðurinn játaði við yfirheyrslur að hafa átt efnin og var látinn laus.

Síðar um kvöldið barst lögreglu ábending um mann á skemmtistað sem grunaður var um að vera með fíkniefni á sér. Við leit á manninum fundust 12 grömm af amfetamíni. Hann einnig gekkst við því að eiga efnin og var látinn laus að yfirheyrslum loknum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×