Viðskipti erlent

Wall Street að ná sér á strik

Miðlarar á gólfi Wall Street.
Miðlarar á gólfi Wall Street. MYND/AFP
Vikan sem er að líða var sú besta á Wall Street undanfarin fjögur ár. Uppgangurinn er að mestu leyti að þakka auknum kaupum á fasteignum en fasteignamarkaðurinn var farinn að hægja verulega á sér.

Fjárfestar töldu að þar sem fasteignamarkaðurinn væri farinn að hægja verulega á sér sýndi hann að bandarískir neytendur héldu að sér höndunum og að það gæti hugsanlega leitt til kreppu síðar á árinu. Viðskiptin í vikunni sýna hins vegar að neytendur hafa ennþá fjármagn á milli handanna og þess vegna fór tiltrú fjárfesta á markaðnum að aukast og hlutabréfaviðskipti að glæðast á ný.

Olíuverð hækkuðu í dag vegna frétta um að Íranar hefðu handtekið 15 breska hermenn. Fjárfestar höfðu áhyggjur af því að aukin spenna á svæðinu gæti haft áhrif á útflutning olíu og því hækkaði verðið.

Einnig er talið að ákvörðun bandaríska seðlabankans um að láta stýrivexti óhreyfða og að hann muni fylgjast vel með verðbólgu hafi haft jákvæð áhrif á markaðinn.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×