Innlent

Þriggja bíla árekstur en engan sakaði

Mynd er úr myndasafni.
Mynd er úr myndasafni. MYND/Gunnar

Þriggja bíla árekstur varð á Holtavörðuheiðinni um sex leytið í kvöld. Engin slys urðu á fólki en bílarnir þrír enduðu allir utan vegar. Töluverð hálka og slæmt veður var á slysstað og er talið að hálkan hafi valdið slysinu. Lögreglan í Borgarnesi er nú á staðnum og hefur lokað heiðinni á meðan bílunum er komið aftur upp á veginn.

Björgunarsveitin Heiðar frá Varmalandi og önnu sveit frá Búðardal fóru líka á heiðina til þess að athuga hvort að ökumenn þyrftu aðstoð. Lögreglan í Borgarnesi vill koma þeim tilmælum til ökumanna að leggja ekki á heiðina núna þar sem mikil hálka er á veginum og mjög slæmt veður.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×