Innlent

Tilraun til sjálfsvígs

Að aka á nærri 300 kílómetra hraða á mótorhjóli er tilraun til sjálfsvígs, segir Sigurður Helgason hjá Umferðarstofu. Nærri þrjú hundruð mótorhjólamenn hafa slasast í umferðarslysum síðastliðinn áratug. Sex hafa beðið bana.

Á íslenskri bloggsíðu hefur síðastliðna viku mátt sjá myndband af mótorhjóli sem fer á manndrápshraða eftir vegum á Suðurnesjum. Myndbandið var sýnt í Kastljósi Ríkissjónvarpsins í gær. Fréttastofa hefur þetta myndband einnig undir höndum og þar má sjá að mótorhjólið fer hraðast í 288 kílómetra hraða. Búið er að taka myndbandið út af bloggsíðunni sem Skúli Steinn Vilbergsson heldur úti. Í færslu sem birtist í gærkvöldi segir hann meðal annars:

Ég neita fyrir það að hafa verið að keyra hjólið á þessu videoi, vissulega setti ég það á netið og allt það en ég var ekki að keyra.

Á öðrum stað í færslunni segir hann:

Og þið sem eruð eitthvað að væla um að mótorhjól séu svo hættuleg í umferðinni og að menn séu að leggja aðra í hættu og blablabla með svona akstri, nefniði mér eitt fucking atvik þar sem einhver hefur slasast eða dáið útaf mótorhjóli í umferðinni.

Fréttastofa hafði samband við Umferðarstofu í dag. Þar fengust þær upplýsingar að á síðustu tíu árum hefur sex dáið í mótorhjólaslysum. Níutíu og einn hafa slasast mikið og tæplega 200 slasast lítið. Samtals hafa því 293 mótorhjólamenn slasast eða látist í umferðarslysum síðastliðinn áratug. Fullyrðing Skúla á bloggsíðunni um að enginn hafi slast út af mótorhjóli er röng. Nítján manns, vegfarendur eða fólk í öðrum ökutækjum, hafa slasast af völdum mótorhjóla á síðustu tíu árum.

Sigurður Helgason hjá Umferðarstofu segir þennan akstur votta um heimsku. "Þetta er hreinlega tilraun til sjálfsvígs, þetta er ekkert annað."

Sektir vegna hraðaksturs voru hækkaðar í desember og nú í þinglok var samþykkt að leggja megi hald á bíla þeirra manna sem eru ítrekað staðnir að ofsaakstri. En þarf ekki að koma í veg fyrir að ökutæki komist upp í slíkan manndrápshraða, til dæmis með hraðalás? "Ég tel ekkert óhugsandi að menn skoði þann möguleika að það sé hægt að beita slíku."

 

 

 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×