Innlent

Vatnselgur í vesturbænum

Töluvert af sjó flæddi yfir varnargarða við Ánanaust um klukkan níu í kvöld. Mikill vatnselgur var á hringtorginu fyrir framan JL-Húsið svokallaða. Menn frá Reykjavíkurborg komu síðan á staðinn og sinntu hreinsunarstörfum.

Vegagerðin hafði varað við því að niðurföll myndu hugsanlega ekki anna vatnselgnum þar sem enn gæti verið frosið í þeim.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×