Innlent

Kona lést í árekstri

Kona á fimmtugsaldri lést þegar jeppi og vörubíll skullu saman rétt austan við Hveragerði um hádegisbil í dag. Þetta er annað banaslysið í umferðinni í ár.

Slysið varð um klukkan hálf eitt í dag skammt vestan við bæinn Kotströnd. Konan sem ók jeppanum var ein í bílnum og var úrskurðuð látin á staðnum. Flytja þurfti ökumann vörubílsins á slysadeild en meiðsl hans eru ekki talin alvarleg. Loka varð Suðurlandsvegi úr báðum áttum vegna slyssins. Vegurinn var lokaður í hátt í fjóra tíma á meðan lögreglan rannsakaði málið.

Þorgrímur Óli Sigurðsson lögreglufulltrúi hjá lögreglunni á Selfossi segir bílana tvo hafa komið hvor úr sinni áttinni.

Umferð var beint um hliðarveg þegar Suðurlandsvegi var lokað í dag en flutningabílum var bent á að fara um Þrengslin vegna þungatakmarkana. Þetta er annað banaslysið í umferðinni á árinu. Karlmaður á fertugsaldri lést í byrjun mars þegar bíll hans fór út af veginum í Hörgárdal.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×