Fótbolti

Bann Navarro gildir í öllum keppnum

Navarro má ekki spila fótbolta næstu sjö mánuði
Navarro má ekki spila fótbolta næstu sjö mánuði NordicPhotos/GettyImages
Varnarmaðurinn David Navarro hjá Valencia getur nú farið að einbeita sér að golfinu næsta hálfa árið eða svo eftir að Alþjóða knattspyrnusambandið samþykkti beiðni þess evrópska um að láta sjö mánaða keppnisbann hans í Meistaradeildinni gilda í öllum keppnum. Navarro fékk bannið eftir alvarleg agabrot í uppþoti sem varð eftir leik Valencia og Inter Milan á dögunum.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×