Innlent

Varað við snjóflóðahættu í Skutulsfirði og við Óshlíð

Vegagerðin varar við snjóflóðahættu á Kirkjubólshlíð í Skutulsfirði og við Óshlíð og eru vegfarendur beðnir um að vera ekki að ferðast þar að nauðsynjalausu. Á Vestfjörðum er annars víða hálka. Þá er Eyrarfjall ófært.

Á Norðurlandi er víða hálka eða hálkublettir. Á Norðausturlandi er víða hálka og skafrenningur. Óveður er á Mývatnsheiði og á Hólasandi.

Það er víðast hvar góð færð á Austurlandi þótt sumstaðar séu hálka, hálkublettir og skafrenningur, einkum á heiðum. Öxi er ófær.

Krapi og hálkublettir eru víða á Suðurlandi. Hálkublettir eru víðast hvar á Vesturlandi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×