Innlent

Neyddist til lendingar á Keflavíkurflugvelli

Flugvél eins og sú sem þurfti að lenda í Keflavík í kvöld. Hún er af gerðinni Hercules C-130. Myndin er úr myndasafni.
Flugvél eins og sú sem þurfti að lenda í Keflavík í kvöld. Hún er af gerðinni Hercules C-130. Myndin er úr myndasafni. MYND/AFP
Bandarísk Herkúles herflugvél þurfti að lenda á Keflavíkurflugvelli í kvöld vegna bilunar í vökvakerfi vélarinnar. Vélin lenti heilu og höldnu á flugvellinum rétt fyrir hálfsjö í kvöld.

Að sögn Friðþórs Eydals, fulltrúa flugmálastjórnar á Keflavíkurflugvelli, voru björgunarsveitir og slökkvilið sett í viðbragðsstöðu. Flugmenn vélarinnar urðu síðan að setja hjól og vængbörð niður handvirkt fyrir lendingu. 22 voru um borð í flugvélinni.

Ekki er vitað á hvaða leið hún var þegar að hún þurfti að lenda í Keflavík en hún var að koma frá herstöð Bandaríkjamanna í Thule á Grænlandi.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×