Innlent

Gæsluvarðhald framlengt

MYND/E.Ól

Hæstiréttur staðfesti í dag framlengingu á gæsluvarðhaldi til ellefta maí yfir tveimur mönnum sem grunaðir eru um aðild að smygli á nærri fjórum kílóum af kókaíni. Mennirnir hafa verið í haldi síðan áttunda febrúar. Fíkniefnin voru falin í bifreið sem flutt var frá Þýskalandi en tollgæsla fann þau áður en þeirra var vitjað og skipti þeim út fyrir gerviefni.

Síðan var fylgst með bílnum og mennirnir handteknir þegar efnin voru fjarlægð úr honum. Í dómsskjölum kemur fram að báðir neiti enn staðfastlega sök.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×