Innlent

Varðskip á leið til bjargar fiskiskipi

Varðskip Landhelgisgæslunnar er nú á leið suður fyrir Reykjanessskaga til að draga vélarvana fiskiskip í land. Gæslunni var tilkynnt um skipið út af Reykjanesi á þriðja tímanum í dag.

Skipið er 70 tonna snurvoðabátur með fimm manna áhöfn. Engin hætta er á staðnum. Skipið bilaði upp úr hádegi og liggur fyrir akkerum stutt frá landi.

Fyrir um klukkustund varð ljóst að skipið kæmist ekki í land án hjálpar. Fragtskipið Laxfoss er á staðnum og bíður þar til varðskipið kemur til að draga skipið í land.

 

Ekki hefur verið ákveðið í hvaða  höfn skipið verður dregið.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×