Fótbolti

Barcelona vill semja við Ronaldinho til 2014

AFP

Varaforeti Barcelona segir félagið hafa mikinn hug á að halda Brasilíumanninum Ronaldinho eins lengi og mögulegt er. Hann segir samning í smíðum sem gilda muni til ársins 2014 og segir Barcelona heldur ekki vilja selja menn eins og Deco og Leo Messi.

"Við munum semja við Ronaldinho þegar keppnistímabilinu líkur. Við ætlum að bjóða honum samning sem mun gilda til ársins 2014 og ég er bjartsýnn á að hann muni skrifa undir samninginn, því hann er ánægður hérna. Af hverju ætti hann þá að vilja fara annað?" sagði Ferran Soriano varaforseti og bætti við að Deco og Messi færu heldur ekki frá félaginu. "Þeir eru báðir ómissandi á næstu leiktíð."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×