Innlent

Verktakar í Reykjanesbæ bjartsýnir á sölu

Verktaki og byggingarmeistari í Reykjanesbæ blása á áhyggjur minnihlutans um að erfitt geti reynst að selja allar þær 1900 íbúðir sem búið er að skipuleggja í bænum. Verktakinn fagnar miklu lóðaframboði og segir það á ábyrgð byggingarmeistara að byggja ekki meira en markaðurinn þolir.

Skipulagðar hafa verið lóðir undir um 1900 íbúðir í Reykjanesbæ sem nú telur um 12.000 manns. Til að manna allar þessar íbúðir þyrfti bæjarbúum að fjölga um 30%. Fulltrúi minnihlutans í bæjarstjórn Reykjanesbæjar, Guðbrandur Einarsson, sagði í fréttum okkar í gær að bæjarbúar hefðu verið kjaftaðir upp í gullgrafaraæði og margir sætu uppi með óseldar eignir. Bæjarstjórinn, Árni Sigfússon, sagði hins vegar að bærinn væri eingöngu að svara eftirspurn eftir lóðum.

Sigurður Kristinn Jónsson byggingarmeistari hefur verið í bransanum í um hálfa öld. Hann er með sex raðhús og fjórar íbúðir í parhúsum óseldar. Hann er þó hvergi banginn og hefur engar áhyggjur af sölu á sínum íbúðum né hinum nítjánhundruð sem eru ýmist nýseldar eða væntanlegar á markað. Dragist salan, geti það þó orðið dýrt. "Stundum selur maður strax og stundum getur þetta tekið svona hálft ár og það er svolítið dýrt að liggja með það á þessum vöxtum sem eru í gangi núna."

Hann óttast ekki að fasteignaverð lækki þótt framboðið sé mikið. "Þetta er uppgangspláss. Þetta á eftir að stækka geysilega mikið. Við höfum góðan stýrimann, Árna Sigfússon, hann keyrir þetta áfram af mikilli fagmennsku."

Áskell Agnarsson verktaki er að reisa blokk við höfnina í Keflavík og er byrjaður að grafa fyrir næstu. Hann hefur ekki áhyggjur af sölu íbúðanna. "Hér er fólk búið að skrifa sig á allar þessar íbúðir sem eru komnar hér upp núna. Og meira að segja farið að skrifa sig á hús sem er ekki farið að sjást hér ennþá."

Áskell fagnar lóðaúthlutunum bæjarins og segir það á ábyrgð byggingarmeistara að byggja ekki meira en markaðurinn þolir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×