Innlent

Fíkniefnamál mörg um helgina

Lögregla hafði afskipti af 25-30  manns vegna fíkniefnamála á veitinga- og skemmtistöðum um helgina.
Lögregla hafði afskipti af 25-30 manns vegna fíkniefnamála á veitinga- og skemmtistöðum um helgina. MYND/Vísir
Allmörg fíkniefnamál komu til kasta lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu um helgina. Farið var á sex veitinga- og skemmtistaði en á fjórum þeirra fundust ætluð fíkniefni. Á meðal fíkniefna sem fundust voru maríjúana, kókaín, hass og amfetamín. Á þessum stöðum voru höfð afskipti af 25-30 manns af fyrrgreindum sökum.

Á laugardagskvöld handtók lögreglan karlmann um fimmtugt í vesturhluta borgarinnar. Á heimili hans fundust kannabisplöntur og sömuleiðis áhöld til ræktunar. Á sama stað voru einnig haldlögð tæki til heimabruggunar.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×