Innlent

Úrskurðaður í gæsluvarðhald

MYND/Valli
Ungur útlendingur sem lögreglan handtók í gær vegna gruns um nauðgun, hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald til 28. mars næstkomandi. Hann var yfirheyrður í morgun með aðstoð túlks.

Lögregla handtók manninn eftir að hafa skoðað myndskeið úr eftirlitsmyndavélum og yfirheyrt starfsfólk á Hótel Sögu. Hann er sakaður um að hafa elt unga konu inn á kvennasalernið á hótelinu aðfaranótt laugardags og nauðgað henni þar.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×