Innlent

Sjóðandi vatnsleki í gamla Morgunblaðshúsinu

MYND/Hari

Sjóðandi heitt vatn lak inn á loftræstikerfi í gamla Morgunblaðshúsinu í Kringlunni þar sem Háskólinn í Reykjavík rekur nú kennslustofur. Að sögn varðstjóra slökkviliðsins lak vatnið niður á milliþil og náði eitthvað að fara niður um eina hæð.

Kennsla var í gangi í kennslustofum þegar lekinn uppgötvaðist. Lítil truflun varð þó á kennslu þrátt fyrir störf slökkviliðsmanna. Búið er að hreinsa upp vatnið og koma í veg fyrir frekari leka.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×