Fótbolti

Robinho tryggði Real sigur

Robinho fagnar hér marki fyrir Real Madrid
Robinho fagnar hér marki fyrir Real Madrid NordicPhotos/GettyImages

Real Madrid var ekki ýkja sannfærandi í spænska boltanum í kvöld þegar liðið vann nauman sigur á smáliði Gimnastic Tarragona 2-0 eftir að vera manni fleiri í 85 mínútur. Real liðið var andlaust í fyrri hálfleik en Robinho breytti gangi leiksins þegar hann kom inn sem varamaður og skoraði fyrra mark liðsins eftir 55 mínútur.

Hann átti svo stóran þátt í sjálfsmarki gestanna undir lokin, en þeir voru að spila á Bernabeu í fyrsta sinn í sögu félagsins. Real er í þriðja sæti deildarinnar - fimm stigum á eftir toppliði Barcelona.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×