Innlent

Tannheilsa barna einnig á ábyrgð foreldra

Heilbrigðisráðherra segir ábyrgð foreldra mjög mikla þegar tannheilsa barna er annars vegar. Stefnt sé að því að ná samningum við Tannlæknafélag Íslands um ókeypis forvarnir fyrir tiltekinn aldurshóp barna.



Mikið hefur verið fjallað um hnignandi tannheilsu íslenskra barna undanfarna daga. Niðurstöður nýrrar rannsóknar sýna að tannskemmdir séu nú tvöfalt fleiri í íslenskum börnum en sænskum. Siv Friðleifsdóttir heilbrigðisráðherra segir að unnið sé að því að ná samningum við Tannlæknafélag Íslands.



„Við erum núna að fá upplýsingar úr viðamikilli rannsókn og það sýnir að við þurfum að bæta tannheilsu barna. Þess vegna hef ég lagt áherslu á að ná samningum við Tannlæknafélag Íslands um ókeypis forvarnir fyrir tiltekna árganga barna. Þannig að foreldrar þurfi ekki að greiða fyrir þær forvarnir," segir Siv.



Hún segir samningana ekki í höfn og í raun enn á frumstigi. „Ég vil ítreka að ábyrgð foreldra er mjög mikil. Foreldrar eiga að kenna börnum sínum að bursta í sér tennurnar og fylgjast með því að þau geri það. Þeir verða einnig að gæta verulega að matarræði þeirra," segir Siv.



Sigurjón Benediktsson formaður Tannlæknafélags Íslands sagði í fréttum Stöðvar tvö í gær að hnignandi tannheilsa íslenskra barna væri afrakstur stefnu stjórnvalda síðastliðin 10 ár. Styrkir til niðurgreiðslu tannlækninga færu hríðlækkandi sem bitnuðu mest á þeim efnaminni.



Siv segir að ekki sé hægt að kenna einum aðila um í þessum málum. „Það þarf að bæta í endurgreiðslu gjaldskrána. Ég vil vinna að því og hef lagt áherslu á þetta í fjárlögum næsta árs." segir Siv.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×