Innlent

Olíusamráðsmálið hafði áhrif á væntanlega lagabreytingu

Forstjóri Samkeppniseftirlitsins segir að olíusamráðsmálið hafi haft áhrif á að samkeppnislögunum yrði breytt. Breytingar á lögunum verða að öllum líkindum samþykktar á Alþingi í kvöld. Í þeim er kveðið á um skýrari refsiábyrgð einstaklinga og fyrirtækja í samráðsmálum.



Hæstiréttur staðfesti í gær frávísun Héraðsdóms Reykjavíkur í máli olíuforstjóranna þriggja sem ákærðir voru fyrir ólögmætt verðsamráð. Í byrjun febrúar síðastliðins vísaði Héraðsdómur málinu frá meðal annars á þeim forsendum að ekki væri unnt að refsa einstaklingum fyrir brot á samkeppnislögum. Hæstiréttur taldi hins vegar að samkeppnislögin hefðu verið óskýr hvað varðar meðferð máls, ef grunur vaknaði um brot gegn lögunum. Hæstiréttur taldi einnig að hinir ákærðu hefðu ekki notið stjórnarskrárvarinna réttinda sakborninga í lögreglurannsókn sem fram fór eftir rannsókn samkeppnisyfirvalda.

Páll Gunnar Pálsson forstjóri Samkeppniseftirlitsins segir niðurstöðu Hæstaréttar vekja alla þá sem að málinu komu til umhugsunar. „Þetta mál laut að hugsanlegri refsiábyrgð einstaklinga eða stjórnenda fyrirtækja og það var í höndum saksóknara en ekki samkeppnisyfirvalda. Samkeppniyfirvöld höfðu afgreitt málið fyrir sitt leyti snemma árs 2005 með stjórnvaldssektum á fyrirtækin upp á einn og hálfan milljarð króna," segir Páll.



Fyrir liggja breytingar á samkeppnislögum sem bíða samþykktar á Alþingi. Páll segir breytingarnar kveða með skýrari hætti á um samspil samkeppnisyfirvalda annars vegar og ákæruvaldsins hins vegar, í málum þar sem bæði getur reynt á refsiábyrgð einstaklinga og fyrirtækja. Hann segir umræðu í tengslum við olíusamráðsmálið hafa spilað inn í þá vinnu sem liggi til grundvallar frumvarpinu. ,, Menn töldu engu að síður að samkeppnislögin væru alveg fullnægjandi stoð undir refsiábyrgð stjórnenda," segir Páll.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×