Innlent

Enn fundað á alþingi

MYND/Vísir

Þingfundur stendur enn yfir á Alþingi og hefur Mörður Árnason verið í ræðustól undanfarin einn og hálfan klukkutíma. Nú standa yfir umræður vegna frumvarps um losun gróðurhúsalofttegunda. Enn er talsverður fjöldi frumvarpa eftir á dagskrá þingsins og búist er við því að þingfundur standi eitthvað fram yfir miðnætti.

Ný fundur verður síðan settur klukkan hálf tíu í fyrramálið. Enn er stefnt að því að ljúka þingi á morgun en formenn flokkanna hittust í kvöld og ræddu málin.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×