Innlent

Hæstiréttur staðfesti frávísun

Hæstiréttur staðfesti frávísun Héraðsdóms Reykjavíkur í máli olíuforstjóranna þriggja í dag. Saksóknari segir niðurstöðu dómsins vera áfellisdóm yfir samkeppnislögunum og að ekki verði endurákært í málinu.



Þann 9.febrúar vísaði Héraðsdómur Reykavíkur frá, máli ákæruvaldsins gegn forstjórum olíufélaganna þriggja, þeim Kristni Björnssyni, Geir Magnússyni og Einari Benediktssyni. Forstjórarnir voru ákærðir í 27 liðum fyrir samráð og markaðsskiptingu. Héraðsdómur vísaði málinu meðal annars frá á þeim forsendum að ekki væri unnt að refsa einstaklingum fyrir brot á samkeppnislögum.

Hæstiréttur taldi hins vegar að fyrirkomulag samkeppnislaga hefði ekki verið nógu skýrt um meðferð máls ef grunur vaknaði um brot gegn samkeppnislögum. Þá taldi Hæstiréttur að hinir ákærðu hefðu ekki notið stjórnarskrárvarinna réttinda sakborninga í lögreglurannsókn sem fram fór eftir rannsókn samkeppnisyfirvalda. Ákæra yrði því ekki reist á þeirri lögreglurannsókn. Hæstaréttardómararnir, Gunnlaugur Classen og Ólafur Börkur Þorvaldsson skiluðu sératkvæði.

Ragnar Hall lögmaður Kristins Björnssonar, forstjóra Skeljungs segir ljóst að samkeppnislög hafi ekki verið skýr. „Það sem stendur upp úr í þessum dómi er að refsiákvæðin í samkeppnislögunum eru þannig útfærð að það var frá upphafi mikill vafi um þau. Það voru ekki einu sinni skilyrði til að hefja lögreglurannsókn í þessu máli," sagði Ragnar.



Helgi Magnús Gunnarsson saksóknari segir niðurstöðu Hæstaréttar ekki koma á óvart en hún sé áfellisdómur yfir samkeppnislögunum. Hann segir málinu nú lokið. „Við höfum þessa einu rannsókn sem var grundvöllur ákæru og hún er þessum annmörkum háð. Við höfum ekkert annað til að byggja ákæru á. Ef það er ekki nógu gott í þessu máli núna, þá verður það ekki betra þó við reynum aftur. Málið er niðurfallið, sakborningarnir eru lausir allra mála og eru væntanlega mjög fegnir því. Við verðum bara að óska þeim til hamingju að vera lausir við þennan bagga sem þeir hafa þurft að bera þessi ár," sagði Helgi Magnús.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×