Innlent

Visir.is mest sótti vefurinn

Samkvæmt niðurstöðum vefmælinga Modernus sækir vefmiðillinn visir.is stöðugt á og mældist í vikunni mest sótti vefur landsins. Þann 14. mars höfðu 365.463 heimsótt visir.is frá mánaðarmótum. Visir.is var því í fyrsta sæti í vefmælingu Modernus, með meiri fjölda heimsókna en nokkur annar vefmiðill á þeim tíma.

Talan sýnir fjölda notenda í dagatalsmánuðinum og er ein af lykiltölum vefjarins segir í yfirlýsingu frá Jens P. Jenssyni framkvæmdastjóra Modernus.

Niðurstöður mælinganna geta verið ruglingslegar þar sem notaðar eru þrjár mismunandi aðferðir við að mæla vefheimsóknir; daglegar, vikulegar og mánaðarlegar mælingar.

Oftast er stuðst við vikulegar mælingar. Þannig segir í frétt Morgunblaðsins af vefmælingunni í dag að fréttavefur blaðsins sé fjölsóttastur vikuna 5.-8. mars.

 

 

 

 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×