Innlent

Býst við að þingi ljúki á laugardag

Forseti Alþingis, Sólveig Pétursdóttir, á von á því að þingi ljúki á laugardag. Sólveig átti fund með formönnum þingflokkanna í kvöld og sagði þetta að honum loknum, í samtali við Sjónvarpið. Þingfundur hófst klukkan 20:52 í kvöld og má búast við því að hann verði fram á nótt.

Alls lágu 80 mál fyrir fundinum en tekist hefur að afgreiða 22 þeirra. Umræður um stjórn fiskveiða, frumvarp um byggðakvóta, stendur nú yfir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×