Fótbolti

Ronaldinho orðaður við AC Milan

NordicPhotos/GettyImages

Mikið er nú slúðrað um framtíð Brasilíumannsins Ronaldinho hjá Barcelona í spænskum og ítölskum fjölmiðlum. Corriere dello Sport greindi frá því í dag að AC Milan væri að undirbúa tilboð í kappann eftir að bróðir hans og umboðsmaður sást snæða kvöldverð með framkvæmdastjóra ítalska félagsins.

"Bróðir minn getur ekki neitað því að hann er hrifinn af Mílanóborg. Þar er fyrir mikið af löndum hans sem tækju honum vel ef hann færi þangað," sagði Roberto Assis, bróðir og umboðsmaður Ronaldinho.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×