Viðskipti erlent

Methagnaður hjá Goldman Sachs

Lloyd Blankfein, forstjóri Goldman Sachs. Hann var launahæsti forstjórinn á Wall Street í Bandaríkjunum í fyrra.
Lloyd Blankfein, forstjóri Goldman Sachs. Hann var launahæsti forstjórinn á Wall Street í Bandaríkjunum í fyrra. Mynd/AFP

Bandaríska fjármálafyrirtækið Goldman Sachs skilaði 3,2 milljarða dala hagnaði á fyrsta ársfjórðungi þessa árs, sem lauk í enda febrúar. Hagnaðurinn jafngildir 215,9 milljörðum íslenskra króna og er methagnaður í sögu fyrirtækisins. Þetta er hins vegar þvert á spár greinenda sem gerðu ráð fyrir því að tekjur Goldman Sachs myndi dragast lítið eitt saman.

Þá er þetta 29 prósenta aukning á milli ára.

Tekjur fyrirtækisins námu 12,7 milljörðum dala, 856,7 milljörðum íslenskra króna, sem er 22 prósenta aukning á milli ára. Þetta er heilum tveimur milljörðum dölum meira en greinendur gerðu ráð fyrir.

Bandaríska fréttastofan CNN segir á vefsíðu sinni í dag að Goldman Sachs hafi verið sérstaklega heppið því rekstrarfjórðungurinn hafi endað einungis fjórum dögum áður en kínverski hlutabréfamarkaðurinn féll undir lok mánaðarins og dró með sér velflesta fjármálamarkaði í heimi. Fallið hafði því ekki áhrif á afkomutölur Goldman Sachs.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×