Innlent

Velja besta ræðumann á Alþingi

Geir Haarde í ræðustól Alþingis.
Geir Haarde í ræðustól Alþingis. MYND/GVA

Junior Chamber International JCI velur besta ræðumann á Alþingi á morgun þegar eldhúsdagsumræður fara fram. Félagar JCI leggja dóm á ræður þingmanna af þingpöllum. Þetta er í fjórða sinn sem valinn er besti ræðumaðurinn á Alþingi.

Tilgangurinn með valinu er að vekja athygli á mikilvægi þess að geta komið máli sínu vel á framfæri, auk þess að veita athygli þeim málefnum sem ber á góma þingmanna.

Dómarar verða þeir Árni Árnason, Hrólfur Sigurðsson og Ingimundur K. Guðmundsson.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×