Fótbolti

Cannavaro og Carlos meiddir

Roberto Carlos getur ekki tekið þátt í "El Clasico" á laugardagskvöldið
Roberto Carlos getur ekki tekið þátt í "El Clasico" á laugardagskvöldið NordicPhotos/GettyImages
Varnarmennirnir Fabio Cannavaro og Roberto Carlos geta ekki leikið með liði Real Madrid þegar það mætir Barcelona í leik ársins á Spáni, en þeir eiga báðir við meiðsli að stríða. Cannavaro verður frá í tvær vikur en Carlos í mánuð. Þá er Ronaldinho tæpur hjá Barcelona vegna meiðsla, en þessi stórslagur verður sýndur beint á Sýn á laugardagskvöldið.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×