Viðskipti erlent

Markaðirnir að jafna sig

Frá markaði í Bandaríkjunum.
Frá markaði í Bandaríkjunum.

Hlutabréfamarkaðir í Asíu jöfnuðu sig að nokkru leyti í gær en flestar vísitölur kauphalla hækkuðu lítillega eftir talsverðar lækkanir frá upphafi síðustu viku þegar markaðirnir tóku snarpa dýfu.

Hlutabréfavísitalan í Sjanghæ í Kína hækkaði um 1,9 prósent við lokun markaða, en Hang Seng-vísitalan í Hong Kong, sem tók snörpustu dýfuna í síðustu viku sem varð til þess að draga helstu fjármálamarkaði með sér, hækkaði um 0,4 prósent.

Þá hækkaði Nikkei-vísitalan í kauphöllinni í Tókýó í Japan um hálft prósentustig.

Ástæðan fyrir lækkununum voru áhyggjur um að verðmæti fyrirtækja og gengi hlutabréfa þeirra væri ofmetið enda hafi helstu vísitölur hækkað mikið undanfarið og væru þær að leiðrétta sig. Þá óttuðust margir, að hægja væri um of á hagvexti í Bandaríkjunum. En lækkanir á heimsmarkaðsverði á hráolíu átti sömuleiðis hlut að máli.

Breska ríkisútvarpið hefur eftir stjórnanda við fjárfestingafyrirtækið Daiwa SB Investments, að þótt ráðamenn og hagfræðingar segi efnahagslífið í Bandaríkjunum á góðri siglingu þá séu fjárfestar áhyggjufullir.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×