Fótbolti

Þjálfari Sevilla borinn rotaður af velli

Ramos þjálfari er hér borinn rotaður af velli í Sevilla í kvöld
Ramos þjálfari er hér borinn rotaður af velli í Sevilla í kvöld AFP
Leikur Real Betis og Sevilla í spænska konungsbikarnum í kvöld var flautaður af í upphafi síðari hálfleiks eftir að þjálfari Sevilla rotaðist þegar aðskotahlut var kastað í höfuð hans. Liðin eru einir hatrömmustu erkifjendur í spænsku deildinni, en Sevilla var marki yfir þegar flautað var af. Juande Ramos þjálfari var fluttur á sjúkrahús eftir atvikið, en er sagður hafa rankað við sér í sjúkrabílnum á leiðinni þangað.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×