Innlent

Ný björgunarmiðstöð í Hafnarfirði

Björgunarsveit Hafnafjarðar ásamt hálparsveit skáta í Kópavogi og slysavarnarfélaginu Landsbjörg við björgunaraðgerðir í Straumsvík.
Björgunarsveit Hafnafjarðar ásamt hálparsveit skáta í Kópavogi og slysavarnarfélaginu Landsbjörg við björgunaraðgerðir í Straumsvík. MYND/Vilhelm

Ný 2000 m² björgunar- og slysavarnarmiðstöð Björgunarsveitar Hafnarfjarðar og Slysavarnadeildarinnar Hraunprýði verður reist í Hafnarfirði á næstunni. Með byggingunni mun öll starfsemi Björgunarsveitar Hafnarfjarðar komast undir eitt þak.

Lúðvík Geirsson bæjarstjóri tekur fyrstu skóflustunguna í dag á Hvaleyrarbraut 32, við gamla bátalónið.

Húsið er sérhannað með starfsemi björgunarsveita á sjó og landi í huga.

Fyrir sjö árum síðan voru Hjálparsveit skáta í Hafnarfirði og björgunarsveitin Fiskaklettur sameinuð undir nafni Björgunarsveitar Hafnarfjarðar.

Sérhönnuð aðstaða verður fyrir helstu fjáraflanir sveitarinnar auk veislusals.

 

.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×