Fótbolti

Rijkaard: Þetta verður mjög erfitt

Frank Rijkaard, þjálfari Barcelona
Frank Rijkaard, þjálfari Barcelona NordicPhotos/GettyImages

Frank Rijkaard viðurkenndi í kvöld að hans menn ættu mjög erfitt verkefni fyrir höndum í síðari leiknum við Liverpool í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar eftir að spænska liðið tapaði fyrri leiknum 2-1 á heimavelli í kvöld.

"Við erum alltaf jákvæðir, en við áttum okkur á því að það verður gríðarlega erfitt fyrir okkur að koma til baka eftir leikinn í kvöld. Liverpool gerði okkur efitt fyrir og nú bíður okkar að sækja sigur á Anfield þar sem Liverpool tapar sjaldan. Það eru enn 90 mínútur eftir af einvíginu og ef við sýnum þolinmæði í síðari leiknum eigum við möguleika. Við verðum að hafa sjálfstraust," sagði Rijkaard.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×