Fótbolti

Við getum ekki haldið í Torres

NordicPhotos/GettyImages

Staðan á framherjanum magnaða Fernando Torres hjá Atletico Madrid verður æ skringilegri með hverjum deginum, en nú nokkrum dögum eftir að leikmaðurinn lýsti því yfir að hann vildi alls ekki fara frá félaginu - hefur yfirmaður liðsins nú komið fram og sagt að félagið eigi ekki möguleika á að halda honum í sínum röðum lengur.

"Mér sýnist okkur gjörsamlega ómögulegt að halda í Torres og á ekki von á því að hann vilji vera hér til frambúðar. Ef hann heldur áfram hjá félaginu, verður það vegna þess að hann óskar þess sjálfur. Það er hreint ótrúlegt að leikmaður á borð við Torres skuli vera uppalinn í herbúðum Atletico og slíkt gerist ekki oft," sagði Jesus Garcia Pitarch.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×