Erlent

Svörtum íbúum Frakklands misboðið

Meira en helmingur af svörtum íbúum Frakklands telja sig hafa verið beitta misrétti, samkvæmt fyrstu skoðanakönnun sem þar er gerð meðal litaðra íbúa. Fimmtíu og sex prósent telja sér mismunað og þrjátíu og sjö prósent telja að ástandið hafi versnað á síðustu tólf mánuðum. Um það bil tvær milljónir fullorðinna svertingja búa í Frakklandi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×