Sport

Sainz eykur forskot sitt

Sainz hefur sigrað á tveimur af fimm dagleiðum til þessa í Dakar
Sainz hefur sigrað á tveimur af fimm dagleiðum til þessa í Dakar AFP
Spænski rallökumaðurinn Carlos Sainz hefur nú þriggja og hálfrar mínútu forskot á næsta mann í París-Dakar kappakstrinum þegar eknar hafa verið fimm dagleiðir. Sainz sigraði á fimmtu dagleiðinni þegar ekið var frá Ourzazate til Tan Tan í suðurhluta Marokkó í Afríku. Landi hans Isidre Esteve Pujol er í forystu í vélhjólaflokki.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×