Sport

Loeb gefur þjónustu sína í Le Mans kappakstrinum

Sebastien Loeb
Sebastien Loeb AFP

Heimsmeistarinn Sebastien Loeb ætlar ekki að taka krónu fyrir að keppa með franska liðinu Pascarolo Sport í hinum sögufræga Le Mans kappakstri á þessu ári, en þetta gerir hann til að styðja við bakið á liðinu sem á í miklum fjárhagserfiðleikum.

"Við erum stoltir af framtaki Loeb og vonumst eftir því að geta veitt liðum eins og Audi meiri keppni fyrir vikið, því við erum ekki með einn fimmtugasta af fjármagninu sem þeir hafa úr að spila," sagði talsmaður Pascarolo liðsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×