Menning

Málverkið í tísku

Málverk eftir einn hinna ungu. Ragnar Jónasson, í Nýló
Málverk eftir einn hinna ungu. Ragnar Jónasson, í Nýló

Nýlistasafnið, höfuðvígi tilrauna í íslenskri myndlist, opnar í dag faðm sinn fyrir málverkinu, hinu aldagamla formi myndrænnar tjáningar. Málverkið er viðfangsefni átta ungra listamanna frá Íslandi, Finnlandi, Sviss og Bandaríkjunum sem allir eiga það sameiginlegt að vinna dægurmenningu samtímans í þetta forna form.

Það eru hinir ungu gullpenslar Íslands, Ragnar Jónasson, sýningarstjóri þessarar sýningar, Davíð Örn og Guðmundur Thoroddsen sem stefna saman þessum alþjóðlega hóp ungra listamanna.

Í kynningu safnsins er tekið svo til orða: „Maður heldur að haustið sé komið en gleymdu því! Vorið springur út í málverkum í Nýlistasafninu, sjónin verður gráðug í litadýrð. Þessi sýning fangar skilningarvitin eins og angar kolkrabbans. Margir armar hans fanga ólíkar stefnur og strauma í málverkinu, blekið lekur og skilur eftir skynörvandi bletti á bol listarinnar.“

Ekki er langt síðan helsti safnari Vesturlanda, auglýsingakóngurinn Saatchi, lýsti því yfir að málverkið væri aftur orðið helsti vettvangur nútímans í myndlist. Nú er að sjá hvað þessi alþjóðlegi hópur er að gera á lérefti.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.