Menning

Sjónvarp dauðans

Þýskir útfararstjórar eru framsýnir.
Þýskir útfararstjórar eru framsýnir.

Þess berast nú fregnir að Þjóðverjar hyggist á haustdögum setja á stofn sérstaka sjónvarpsrás sem helguð verður dauðanum. Vefrit Deutsche Welle greinir frá því að samband þýskra útfararstjóra standi að baki stöðinni sem mun sjónvarpa efni allan sólarhringinn en þar verði meðal annars fjallað um sorgarferli, útfararsiði, reglugerðir og annað tilstand er fylgir þessu óumflýjanlega hlutskipti.



Haft er eftir talsmanni samtakanna að markmið félagsins sé að létta af þeirri bannhelgi sem umlykur dauðann. Markhópur stöðvarinnar, sem verður einnig aðgengileg á internetinu, er ört stækkandi hópur eldri borgara í Þýskalandi en þeir tilheyra kynslóð sem básúnar lítt tilfinningar á torgum né er mjög upplýstur um praktísk mál er fylgja þessum hinstu förum.



Upplýst er að reksturinn verður að hluta til fjármagnaður með dánartilkynningum sem hægt verður að birta á stöðinni en einnig vonast aðstandendur stöðvarinnar til þess að fyrirtæki og stofnanir sem deila fyrrgreindum markhóp muni stökkva um borð í vagninn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.