Það sem skilur okkur að 30. júní 2007 02:00 Tvíburarnir e. Tessu de Loo JPV - forlag Þýðandi: Jóna Dóra Óskarsdóttir HHHH Heillandi og eftirminnileg bók um afstæði sögunnar.
Kristrún Heiða Hauksdóttir skrifar,Saga tvíburanna Önnu og Lottu veitir óvenjulega sýn á tíma sem þegar hefur verið margskráður í skáldskap og öðrum ritum. Systurnar fæðast í Köln í Þýskalandi árið 1916 en eru aðskildar sex árum síðar eftir að foreldrar þeirra deyja. Hlutskipti þeirra, hvorrar í sínu landinu, dregur upp margbrotna mynd af mannfólki í tættri álfu á stríðstímum. Höfundinum tekst á afar eftirminnilegan hátt að gefa þessum systrum sjálfstætt en sítengt líf þar sem ólíkindi þeirra verða til vitnis um hversu mjög hending getur ráðið hamingjunni. Hin raddfagra Lotta er náðarsamlegast send til frændfólks í Hollandi vegna þess að hún er veiklulegri, en hin atorkusama Anna fer hins vegar til afa stúlknanna sem hokrar á bóndabæ í Þýskalandi og herðir fólk sitt í trú á kaþólskuna og óbilandi iðjusemi. Aðstæður þeirra eru afar ólíkar, Anna þrælar daginn út og inn undir hælnum á stjúpu sinni og biturleikinn nær á henni eilífum tökum. Lotta blómstrar á heimili sem er fullt af tónlist og skilningi. Þær upplifa skugga nasismans á sinn hátt en hann er ekki það eina sem stíar þeim í sundur. Óeining innan fjölskyldunnar og röð af tilviljunum verður einnig til þess að þær ná ekki saman fyrr en þær loksins hittast háaldraðar á heilsuhæli . Rammi þessarar sögu, systurnar tvær sem nauðugar viljugar sitja saman í móböðum eða yfir belgískum krásum og rifja upp sögur sínar, er húmorískur í meira lagi. Þetta eru kaldhæðnislegar aðstæður til að rifja upp tíma hungurs og örvæntingar, þessarar ógnaraldar í Evrópu þegar systurnar sitja við kaffidrykkju og kökuát í hressingarskálum í Belgíu. Þær hafa ólíka sýn á söguna og þá sér í lagi nasismann. Á meðan fjölskylda Lottu skaut skjólshúsi yfir gyðinga og hún giftist einum þeirra gekk eiginmaður Önnu á endanum til liðs við SS-sveitirnar. Þær misstu mennina í stríðinu sem klýfur fjölskyldubönd þeirra og báðum gremst þeim hversu lítinn skilning hvor um sig hefur á aðstæðum og bakgrunni hinnar. Það forvitnilegasta við sögu Loo er þetta óvenjulega sjónarhorn kvenna á seinni heimstyrjöldina. Stríð kvenna sem snerist um „litlu hlutina“, bjargráðin – kartöflur og hveiti. Hjá þeim snerist allt um að lifa af en ekki um hugsjónir og pólitík. Stórsagan sem flestir þekkja er ekki í forgrunni heldur hversdagslegt streð þeirra, smásigrar og vonbrigði sem þær lýsa hvor fyrir annarri þegar ævin er næstum á enda. Sagan er afar lipurlega skrifuð, framvindan hröð og spennandi með auðugt safn af aukapersónum sem líða seint úr minni. Höfundinum er augljóslega annt um þær systur en þær eru einnig afar breyskar hetjur, eins og allir hafa þær gert sín mistök og hafa ýmislegt á samviskunni. Bókin er einnig vel þýdd en verra er að frágangur hennar er ekki til fyrirmyndar þar sem oft er ekki hugað að réttu bili milli orða sem gerir hana síður læsilega.
Mest lesið Tíu ár af ást: „Sennilega ekki auðvelt með mér“ Lífið Skilnaður handan við hornið hjá Kanye og Biöncu Lífið Hafi enn verið hreinn sveinn Lífið Ragnhildur og Hanna Katrín kveðja Búseta Lífið Kemur frá Sýrlandi og syngur á íslensku Tónlist Harry og Meghan séu ekki að skilja Lífið Henti listaverkinu í ruslið Menning Galið að fræðsla um snípinn sé af skornum skammti Lífið Stofnar eigin útgáfu og byrjar í ruslinu Lífið Logi Geirs og Ólafur Ragnar léttir í London Lífið Fleiri fréttir Henti listaverkinu í ruslið Kúltúrkettir landsins létu sig ekki vanta í Portið „Hrátt háþróað krass, langt leitt krot“ Bjóða landsmönnum nauðbeygð til messu Allt í banönum á Brút Bríet lét sig ekki vanta á sýningaropnun Ynju Blævar Út um allar koppagrundir Alþingis: „Froðan flæðir endalaust, það er bara froða froða“ Skálda opnar: „Kannski ekki margir nógu vitlausir til að framkvæma þessa hugmynd“ Össur Geirsson er heiðurslistamaður Kópavogs 2024 Margmenni í sköpunargleði og stuði á safninu Ólafur Elíasson tekur yfir Piccadilly Circus og Times Square Opna fyrstu umboðsstofuna í eigu leikara Baráttan innra með manni eins og ljós og skuggar Bein útsending: Salman Rushdie hlýtur verðlaun Halldórs Laxness Bong Joon Ho verður stafrænn heiðursgestur á RIFF Ævar Þór Benediktsson hlýtur verðlaun Guðrúnar Helgadóttur Ráðinn markaðs- og kynningarstjóri Tónlistarmiðstöðvar Verk Arnhildar og félaga valið framlag Íslands á Feneyjatvíæringnum í arkitektúr Lyfjameðferð við meðvirkni: „Æ, ég væri bara til í að taka eina töflu“ „Mann- og listfjandsamleg þvæla“ Sjá meira