Menning

Faust í þýðingu Coleridge?

Skáldið Coleridge hélt þýðingu sinni leyndri af ótta við samningsbrest.
Skáldið Coleridge hélt þýðingu sinni leyndri af ótta við samningsbrest.

Stefnt er að því að þýðing enska skáldsins Samuel Taylor Coleridge á Faust, höfuðverki þýska starfsbróður hans Goethes, komi út hjá Oxford University Press í september. Þýðing þessi ku hafa legið í gleymsku í næstum tvær aldir en rómantíkerinn er talinn hafa tekið að sér að þýða verkið í kringum árið 1814. Vefmiðill breska dagblaðsins Independent greindi frá þessu nýlega.

Bandarískur fræðimaður að nafni McKusick segist geta fært fyrir því rök að ónafngreind þýðing, sem bendluð hefur verið við nafn Coleridge áður en aldrei verið eignuð honum, sé eftir höfuðskáld ensku rómantíkurinnar. Hefur McKusick varið rúmum þrjátíu árum ævi sinnar í rannsókn á fyrrgreindu handriti en hann tók það verkefni í arf frá lærimeistara sínum, Paul Zall, sem lengi hafði gruflað í sama máli. Coleridge er talinn hafa haldið þýðingu sinni leyndri vegna þess að hann samdi við tvo útgefendur sem báðir greiddu honum fyrir viðvikið.

McKusick beitti nútíma tölvutækni við samanburðarrannsóknir sínar og með hjálp stærðfræðideildar háskólans í Montana þykir hann nú hafa fært sönnur fyrir því að stíll þýðingarinnar sé sá sami og í fyrri verkum Coleridge.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.