Innlent

Bílvelta á Garðsvegi

MYND/Valli

Ökumaður, sem grunaður er um ölvun, ók út af og velti bíl á Garðsvegi á Suðurnesjum í morgun á móts við golfvöllinn í Leiru. Lögreglu barst tilkynning um bílveltuna um áttaleytið.

Ökumaðurinn, 24 ára gamall, bar skýr merki ölvunar, að sögn lögreglunnar í Keflavík en hann var þó heppinn að sleppa frá slysinu aðeins með skrámur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×