Innlent

Tvö umferðóhöpp við Grindavíkurafleggjara

Vegatálmarnir sem um ræðir.
Vegatálmarnir sem um ræðir. MYND/Vilhelm

Tveir bílar skullu á vegatálmum úr steypu með stuttu millibilli við Grindavíkurafleggjara í dag. Bílarnir skemmdust ekki mikið og engin slys urðu á fólki. Talið er að hálka á veginum hafi verið sökudólgurinn að þessu sinni.

Vegatálmarnir sem bílarnir lentu á eru sams konar og voru notaðir vegna framkvæmda við Reykjanesbraut nýlega. Þar lést maður eftir að bíll sem hann var farþegi í klessti á þá.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×