Innlent

Róleg nótt hjá lögreglu um land allt

MYND/GVA

Brotist var inn í íbúðarhús við Álfabakka í nótt og kom lögregla að þjófunum þegar þeir voru enn inni í húsinu. Náðist annar þeirra og slapp hinn en vitað hver sá sem slapp er svo lögregla býst við því að ná honum fljótlega. Sex ökumenn voru síðan teknir í Reykjavík fyrir að aka undir áhrifum áfengis.

Ölvaður ökumaður ók á ljósastaur á Hafnarfjarðarvegi við gjánna í Kópavogi á öðrum tímanum í nótt. Ökumaður og tveir farþegar voru fluttir á slysadeild en sluppu án teljandi meiðsla. Þá þurfti lögreglan í Kópavogi að sinna nokkrum útköllum í heimahús vegna ölvunar fólks.

Annars staðar var rólegt og virðist sem landinn hafi verið í jólaskapi. Á Akureyri var lögreglan með töluvert eftirlit en fólk var bara í jólaskapi. Á Selfossi var síðan allt með kyrrum kjörum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×