Erlent

Áhættuleikari lenti á hausnum

Leikaranum fataðist flugið eftir að hafa farið í gegnum annan hringinn af þremur og féll svo endanlega í þriðja hringnum.
Leikaranum fataðist flugið eftir að hafa farið í gegnum annan hringinn af þremur og féll svo endanlega í þriðja hringnum. MYND/AP - frá kínverska ríkissjónvarpinu

Bandarískum áhættuleikara, Svarousky Oldrich, hefndist fífldirfskan á laugardaginn í Kína. Hann átti að stökkva af þaki bíls á ferð í gegnum þrjá logandi hringi. Hann komst í gegnum þrjá þeirra en fataðist flugið og lenti beint á hausnum. Hann missti meðvitund og fékk slæman heilahristing en kúpan virtist ekki hafa brotnað. Áður hafði Oldrich leikið áhættuatriði í myndum á borð við Men in Black og Taxi Driver.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×