Innlent

Komust ómeidd úr brennandi húsi

Roskin kona komst ómeidd út úr brennandi húsi sínu við Oddeyrargötu á Akureyri um klukkan hálf tólf í gærkvöldi, og gerði nágrönnum sínum viðvart, sem líka forðuðu sér út.

Þegar slökkviliðið kom á vettvang logaði mikill eldur á efri hæð í íbúð konunnar, en húsið er parhús á tveimur hæðum. Þótt slökkvistarf hafi gengið vel, er efri hæð í íbúð konunnar nær ónýt og mikill reykur barst inn í hitt húsið þannig að allir íbúar þurftu að gista annarsstaðar í nótt.

Eldurinn virðist hafa kviknað í sjónvarpstæki, sem konan hafði nýlega slökkt á, en verið er að rannsaka það nánar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×