Nöfn og þjóðtrú: Þemakvöld Félags þjóðfræðinga á Íslandi 5. desember 2006 10:30 Svavar Sigmundsson, rannsóknardósent á Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum og fyrrverandi forstöðumaður Örnefnastofnunar: Örnefni og þjóðtrú.
Næsta þemakvöld Félags þjóðfræðinga verður fimmtudaginn 7. desember kl. 20.00. Fyrirlesarar eru Svavar Sigmundsson og Kendra Willson. Þemakvöldið fer að venju fram í húsi Sögufélagsins við Fischersund. Á hverjum tíma og í hverju samfélagi eru skráðar eða óskráðar reglur um mannanöfn. Á Íslandi hefur lengi verið sterk hefð fyrir því að láta börn heita í höfuðið á ættingjum. Því hefur verið haldið fram að það að vitja nafns í draumi sé aðferð (social strategy) sem gerir foreldrum kleift að víkja frá þessari hefð og koma nýjum nöfnum inn í ættina. Báðar lýsa aðferðirnar togstreitu á milli hvatar til að nota nafngjafir til sjálfstjáningar og til að halda í gömlu hefðina og þá ætt- og þjóðrækni sem hún er talin bera vott um. Fyrr í tímum var það á ábyrgð presta að gæta þess að börnum yrðu ekki gefin nöfn sem samfélagið taldi óviðeigandi. Á 20. öld voru sett lög um mannanöfn (1913, 1925, 1991, 1996) og ábyrgð fyrir framkvæmd þeirra færðist frá embættismönnum kirkjunnar yfir á veraldleg yfirvöld og stofnanir (Dómsmálaráðuneyti, Mannanafnanefnd, Hagstofu). Á sama tíma hefur breytt samfélagsmynd haft í för með sér breytingar á gildi eða vægi mannanafna. Mannanafnalögin hafa einnig tengst innflytjendamálum á Íslandi þar sem íslenskt nafn var forsenda fyrir íslenskum ríkisborgararétti frá 1952 til 1996. Fjallað verður um mannanöfn sem menn á Íslandi eru sagðir hafa viljað taka upp eða skíra börnin sín en sem andleg eða veraldleg yfirvöld hafa hafnað eða aðrir í samfélaginu fordæmt - frá sögunni ,,Satan vitjar nafns" (Jón Árnason 1954, II: 25-26) til nafna eins og Satanía, sem Mannanafnanefnd hafnaði fyrir nokkrum árum. Orðræða tengd þessum ,,nafnaskrípum" eða ,,ónefnum" varpar ljósi á hugmyndir fólks um hlutverk foreldra og viðkomandi stofnana og jafnframt á þátt mannanafna í mótun ímyndar einstaklings og þjóðar. Hvað gerist ef nafns er vitjað sem er ekki á mannanafnaskrá, sem brýtur í bága við íslenskt málkerfi eða gæti orðið nafnbera til ama? Hafa huldukonunöfn samkvæmt skilgreiningu unnið sér hefð í íslensku máli - eða menningarhelgi? Af hverju kaus Jorge Ricardo Cabrera Hidalgo að heita Eilífur Friður? Kendra vinnur nú að doktorsritgerð um íslensk gælunöfn, og hefur um þessar mundir aðstöðu á Stofnun Árna Magnússonar. Nánari upplýsingar um starf Félags þjóðfræðinga er að finna á slóðinni http://www.akademia.is/thjodfraedingar/ Kendra Jean Willson, doktorsnemi í norrænum fræðum við Kaliforníuháskóla í Berkeley: Sögur af ónöfnum. Frá Satan til Sataníu. .
Mest lesið Tíu ár af ást: „Sennilega ekki auðvelt með mér“ Lífið Skilnaður handan við hornið hjá Kanye og Biöncu Lífið Hafi enn verið hreinn sveinn Lífið Ragnhildur og Hanna Katrín kveðja Búseta Lífið Kemur frá Sýrlandi og syngur á íslensku Tónlist Harry og Meghan séu ekki að skilja Lífið Henti listaverkinu í ruslið Menning Galið að fræðsla um snípinn sé af skornum skammti Lífið Stofnar eigin útgáfu og byrjar í ruslinu Lífið Logi Geirs og Ólafur Ragnar léttir í London Lífið Fleiri fréttir Henti listaverkinu í ruslið Kúltúrkettir landsins létu sig ekki vanta í Portið „Hrátt háþróað krass, langt leitt krot“ Bjóða landsmönnum nauðbeygð til messu Allt í banönum á Brút Bríet lét sig ekki vanta á sýningaropnun Ynju Blævar Út um allar koppagrundir Alþingis: „Froðan flæðir endalaust, það er bara froða froða“ Skálda opnar: „Kannski ekki margir nógu vitlausir til að framkvæma þessa hugmynd“ Össur Geirsson er heiðurslistamaður Kópavogs 2024 Margmenni í sköpunargleði og stuði á safninu Ólafur Elíasson tekur yfir Piccadilly Circus og Times Square Opna fyrstu umboðsstofuna í eigu leikara Baráttan innra með manni eins og ljós og skuggar Bein útsending: Salman Rushdie hlýtur verðlaun Halldórs Laxness Bong Joon Ho verður stafrænn heiðursgestur á RIFF Ævar Þór Benediktsson hlýtur verðlaun Guðrúnar Helgadóttur Ráðinn markaðs- og kynningarstjóri Tónlistarmiðstöðvar Verk Arnhildar og félaga valið framlag Íslands á Feneyjatvíæringnum í arkitektúr Lyfjameðferð við meðvirkni: „Æ, ég væri bara til í að taka eina töflu“ „Mann- og listfjandsamleg þvæla“ Sjá meira