Erlent

Saddam áfrýjar dauðadómi

Saddam Hussein hefur áfrýjað dauðadóminum yfir sér fyrir að hafa framið glæpi gegn mannkyninu með herferð sinni gegn sjía múslimum. Það var fyrsti dauðadómurinn sem hann hlaut fyrir verk sín meðan hann var einræðisherra í Írak.

Saddam er nú fyrir rétti fyrir herferð sína gegn Kúrdum og mörg fleiri réttarhöld vofa yfir honum, vegna meintra ódæðisverka. Sá möguleiki er því fyrir hendi að hann hljóti marga dauðadóma.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×