Fótbolti

Kolbeinn til AZ á reynslu

Unglingalandsliðsmaðurinn Kolbeinn Sigþórsson hjá HK fer á morgun til reynslu hjá AZ Alkmaar í Hollandi þar sem hann mun dvelja í vikutíma. Frá þessu er greint á heimasíðu HK.

Kolbeinn er á mála hjá HK eftir að hafa alist upp hjá Víkingi í Reykjavík. Hann er ekki nema 16 ára gamall en spilaði samt sem áður með meistaraflokki liðsins í fyrra.

Hjá AZ hittir Kolbeinn fyrir tvo íslenska landsliðsmenn, Grétar Rafn Steinsson og Jóhannes Karl Guðjónsson. Þess má geta að Kolbeinn er bróðir Andra Sigþórssonar, fyrrum landsliðsmanns Íslands.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×